Laust starf við Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs
Laust er til umsóknar starf starfsmanns við Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs.
Um 50% starf er að ræða.
Helstu verkefni eru:
• Dagleg umsýsla með Sláturhúsinu og umhverfi þess
• Uppsetning og umsjón með tækjum og stjórnun ljósa-, hljóð og myndsenditækja.
• Aðstoð við forstöðumann vegna kynninga á samfélagsmiðlum, sýninga og gestamóttöku og við
undirbúning og framkvæmd viðburða og verkefna
Hæfniskröfur:
• Áhugi og þekking á menningu og listum
• Sjálfstæði í starfi
• Áhugi á að tileinka sér kunnáttu í meðferð tækja og búnaðar
• Textaskrif
• Sveigjanleiki
• Þekking á notkun samfélagsmiðla
• Félagshæfni
Æskilegt er að starfsmaður geti byrjað sem fyrst.
Um hálft starf er að ræða og laun greiðast samkvæmt kjarasamningi FOSA og eru karlar jafnt sem
konur hvött til að sækja um starfið.
Allar frekari upplýsingar veitir forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Fljótsdalshéraðs í síma 897 9479
og 767 3323 eða netfangið [email protected] og Óðinn Gunnar í síma 860 2905 eða
netfangið [email protected].
Umsóknarfrestur er til og með 30. september 2019.
Umsóknir berist á Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs,
Kaupvangi 9, 700 Egilsstaðir merkt Starfsmaður
eða á netfangið [email protected].