Laust starf: Sérfræðingur í fræðslumálum atvinnulífsins
Við auglýsum starf rannsakanda laust til umsókna. Ef þú vilt vinna á faglega krefjandi og skemmtilegum vinnustað, þar sem hvatinn er söfnun og framsetning upplýsinga um og fyrir Austurland, erum við með starfið fyrir þig!
Viltu sinna fræðslumálum fyrir atvinnulífið? Ertu flinkur í samskiptum og góður sölumaður?
Við leitum að sérfræðingi til að leiða verkefni um tengsl Austurbrúar og atvinnulífsins á sviði fræðslumála. Starfið felst í að mynda og viðhalda tengslum við atvinnulífið varðandi fræðslumál; meta fræðslu-þarfir, kynna tækifæri og möguleika stórra og smárra fyrirtækja til að bjóða starfsmönnum sínum sí- og endurmenntun.
Við leitum að einstaklingi sem er lausnamiðaður, umbótasinnaður og á auðvelt með að draga upplýsingar saman og skapa yfirsýn. Hér er um að ræða tækifæri fyrir drífandi einstakling til að móta spennandi starf.
Ábyrgðarsvið
- Skilgreina og ramma inn verkefni sem snúa að fræðsluþörfum fyrirtækja á Austurlandi
- Skipuleggja, halda utan um og framkvæma greiningar og úrræði
- Samskipti við fyrirtæki og stofnanir
- Samskipti við fræðslusjóði
- Teymisvinna
Kröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Framúrskarandi samskiptahæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði til verka
- Skipulagshæfni og kunnátta á skipulagsverkfæri
- Tölvu- og tæknifærni
- Leiðtogahæfni
Umsókn skal fylgja
- Ferilskrá
- Kynningarbréf
- Upplýsingar um meðmælendur
Frekari upplýsingar
Tinna K. Halldórsdóttir: [email protected] // 470 3802
Umsóknarfrestur
Til og með 5. september 2021.