Laust starf: Rannsakandi
Við auglýsum starf rannsakanda laust til umsókna. Ef þú vilt vinna á faglega krefjandi og skemmtilegum vinnustað, þar sem hvatinn er söfnun og framsetning upplýsinga um og fyrir Austurland, erum við með starfið fyrir þig!
Ertu forvitinn, skipulagður og fjölhæfur rannsakandi?
Við leitum að sérfræðingi til að leiða rannsóknar- og greiningar-verkefni. Í starfinu felst vinna við ýmiskonar rannsóknir og greiningar á sviði lýðtölfræði, innviða Austurlands og til stuðnings öðrum verkefnum stofnunarinnar, umsjón og utanumhald með umsóknum um styrki og rannsóknarstefnu Austur-brúar, framkvæmd rannsókna og kannana, vinna við sjálfbærniverkefni Alcoa og Landsvirkjunar, sem og greining vísa Sóknaráætlunar Austurlands.
Við leitum að einstaklingi sem er úrræðagóður, drífandi, talnaglöggur og fjölhæfur, á auðvelt með að draga upplýsingar saman og skapa yfirsýn.
Ábyrgðarsvið
- Umsjón með rannsóknarverkefnum
- Umsóknir um styrki
- Teymisvinna
Kröfur
- Háskólamenntun í aðferðafræði & tölfræði
- Góð hæfni í gagnavinnslukerfum, s.s. Excel, PowerBi, SPSS
- Færni í textagerð og skýrsluskrifum
- Reynsla af rannsóknarvinnu
- Góð færni í samskiptum
- Leiðtogahæfni
Umsókn skal fylgja
- Ferilskrá
- Kynningarbréf
- Greinargerð sem lýsir reynslu af vinnu við rannsóknarverkefni
- Upplýsingar um meðmælendur
Frekari upplýsingar
Tinna K. Halldórsdóttir: [email protected] // 470 3802
Umsóknarfrestur
Til og með 5. september 2021.