Laust starf í Íþróttamiðstöð Egilsstaða
Íþróttamiðstöðin á Egilsstöðum auglýsir eftir karlmanni í 100% starf
frá og með 1. janúar 2019. Unnið er á vöktum og þriðju hverja helgi.
Helstu verkefni eru:
– Eftirlit og gæsla í íþróttamiðstöð
og búningsklefum.
– Almenn afgreiðsla og uppgjör í lok vaktar.
– Þjónusta við gesti íþróttamiðstöðvar.
– Almenn þrif.
– Annað það sem til fellur
Laun eru samkvæmt kjarasamningum Fosa og AFLS-Starfsgreinafélags.
Umsóknarfrestur er til 19. nóvember. Umsókn sendist til Íþróttamiðstöðvarinnar á Egilsstöðum,
Tjarnarbraut 26, 700 Egilsstöðum eða á netfangið [email protected].
Nánari upplýsingar gefur forstöðumaður Íþróttamiðstöðvar, í síma 860 3139
eða á netfangið [email protected].
Hæfniskröfur:
– Snyrtimennska, góð samskiptahæfni
og rík þjónustulund.
– Metnaður, frumkvæði og sjálfstæði
í vinnubrögðum.
– Námskeið í skyndihjálp og sundpróf.
– Góð málakunnátta s.s. íslenska,
enska, þriðja tungumál kostur.
– Reynsla er kostur.
Lyngási 12, 700 Egilsstaðir, S: 4 700700
[email protected], fljotsdalsherad.is