Laust starf félagsráðgjafa í Austurlandslíkaninu hjá Félagsþjónustu Fljótsdalshéraðs

Félagsráðgjafi starfar í teymi Austurlandslíkansins er kemur að málefnum barna og fjölskyldna í
samstarfi við skóla, leikskóla og heilsugæslu. Teymið starfar að hluta til í leik- og grunnskólum þeirra
sex sveitarfélaga sem standa að Félagsþjónustu Fljótsdalshéraðs. Auk þess að sitja í teyminu, starfar
félagsráðgjafi innan fjölskyldusviðs og sinnir m.a. barnaverndarmálum ásamt öðrum þeim störfum sem
almennt tilheyra sviðinu.
Félagráðgjafi starfar meðal annars eftir barnaverndarlögum nr. 80/2002, og lögum um félagsþjónustu
sveitarfélaga nr. 40/1991, lögum um málefni fatlaðs fólks nr. 59/1992, og stjórnsýslulögum nr. 37/1993.

Menntunar og hæfniskröfur:
• Starfsréttindi í félagsráðgjöf
• Þekking og reynsla af félagsþjónustu og barnavernd
• Reynsla af starfi í opinberri stjórnsýslu
• Krafist er góðrar alhliða tölvukunnáttu, þekking á Navision og OneSystems er kostur
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Góðir samskiptahæfileikar og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
• Bílpróf
Umsóknarfrestur er til og með 19. október 2018
Upphaf starfs er eftir samkomulagi.
Öllum umsóknum verður svarað.

Umsókn ásamt starfsferilsskrá og kynningarbréfi sem greinir frá ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir
hæfni í starfið skulu berast á netfangið [email protected].
Nánari upplýsingar um starfið veitir Júlía Sæmundsdóttir, félagsmálastjóri, í síma 4700705.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Fólk af báðum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.
Vinnustaðir Fljótsdalshéraðs eru reyklausir.

Secret Link