Lausar stöður leikskólakennara

Bjarkatún auglýsir lausa til umsóknar stöður leikskólakennara frá og með 15. ágúst 2022.

Leikskólinn Bjarkatún er 2 deilda leikskóli með 37 börn staðsettur á Djúpavogi sem þekkt er fyrir fallegt umhverfi og útivistarsvæði. Leikskólinn vinnur eftir hugmyndafræði Cittaslow, Grænfána og Uppeldi til ábyrgðar. Samvinna, traust og virðing eru lykilorð okkar í leikskólanum.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfisbréf sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn). Ef ekki fæst kennari verður ráðinn starfsmaður með aðra uppeldismenntun eða leiðbeinandi.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Áhugi á að vinna með börnum
  • Sveigjanleiki, áreiðanleiki og stundvísi
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta

Nánari upplýsingar um leikskólann, www.bjarkatun.is

Umsóknarfrestur er til 16. júní nk.

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Þeir sem ráðnir eru til starfa hjá leikskólanum þurfa að veita heimild til að leitað sé upplýsinga úr sakaskrá hjá Ríkissaksóknara.

Einstaklingar af öllum kynjum eru hvött til að sækja um stöðuna.

Nánari upplýsingar veitir Guðrún Sigríður Sigurðardóttir, leikskólastjóri, í síma 470 8720 eða á netfanginu [email protected]

Öllum umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og/eða fyrri störf og kynningarbréf.

Tekið er við umsóknum í starfið á heimasíðu Múlaþings www.mulathing.is undir flipanum „laus störf“ eða á starfasíðu Múlaþings hjá www.alfred.is

Umsækjendum er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimsíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is