Lausar stöður leikskólakennara
Leikskólinn í Brúarási auglýsir lausa til umsóknar stöðu leikskólakennara frá og með 15. Ágúst 2022.
Í Brúarási er rekinn einnar deildar leikskóli með nemendur á aldreinum eins til sex ára. Leikskólinn er partur af samrekinni skólastofnun í Brúarási og mikið flæði milli skólastiga. Starfstími leikskólans er frá fyrstu starfsdögum grunnskólans til þess síðasta á vorin.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn). Ef ekki fæst kennari verður ráðinn starfsmaður með aðra uppeldismenntun eða leiðbeinandi.
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Áhugi á að vinna með börnum
- Sveigjanleiki, áreiðanleiki og stundvísi
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta
Nánari upplýsingar um leikskólann má finna á www.bruaras.mulathing.is
Umsóknarfrestur er til 8. apríl n.k.
Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Þeir sem ráðnir eru til starfa hjá leikskólanum þurfa að veita heimild til að leitað sé upplýsinga úr sakaskrá hjá Ríkissaksóknara.
Einstaklingar af öllum kynjum eru hvött til að sækja um stöðuna.
Nánari upplýsingar veitir Ásgrímur Ingi Arngrímsson, skólastjóri í síma 470 0625 eða á netfanginu [email protected].
Öllum umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og/eða fyrri störf og kynningarbréf.
Tekið er við umsóknum í starfið á heimasíðu Múlaþings www.mulathing.is undir flipanum „laus störf“ eða á starfasíðu Múlaþings hjá www.alfred.is
Umsækjendum er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimasíðu sveitarfélgasins www.mulathing.is