Lausar stöður leikskólakennara

Tjarnarskógur auglýsir lausa til umsóknar stöður leikskólakennara frá og með 1. ágúst 2023.

Leikskólinn Tjarnarskógur er 9 deilda leikskóli með 175 börn á tveimur starfsstöðvum.

Leikskólinn horfir til fjölgreindarkenningar Howard Gardners í starfsaðferðum sínum og einkunnarorð skólans eru: Gleði, virðing, samvinna og fagmennska.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leikskólakennaramenntun. Ef ekki fæst leikskólakennari verður ráðinn starfsmaður með aðra uppeldismenntun eða leiðbeinandi
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Áhugi á að vinna með börnum
  • Sveigjanleiki, áreiðanleiki og stundvísi
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta

Nánari upplýsingar um leikskólann www.tjarnarskogur.is

Umsóknarfrestur er til 12. apríl nk.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins og viðkomandi stéttarfélags.

Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um stöðuna.

Nánari upplýsingar vietir Sigríður Herdís Pálsdóttir, leikskólastjóri í síma 470 0660 eða á netfanginu [email protected]

Sótt er um störfin á heimasíðu Múlaþings www.mulathing.is undir „störf í boði“ eða í gegnum ráðningarvef Alfreðs: Lausar stöður leikskólakennara | Leikskólinn Tjarnarskógur (alfred.is)

Öllum umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og/eða fyrri störf ásamt kynningarbréfi.

Umsækjendum er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is.

Þeir sem ráðnir eru til starfa hjá félagsþjónustu, skólum og frístund þurfa að veita heimild til ð leitað sé upplýsinga úr sakaskrá hjá Ríkissaksóknara. Vinnustaðir Múlaþings eru reyklausir og fjölskylduvænir.

Secret Link