Lausar stöður leikskólakennara

Hádegishöfði auglýsir lausa til umsóknar stöður leikskólakennara frá og með 15. ágúst 2023.

Hádegishöfði er tveggja deilda leikskóli í Fellabæ sem starfar í anda Reggio Emilia, áhersla er á umhverfismennt og er Hádegishöfði skóli á grænni grein. Megináherslu í daglegu starfi eru að efla sjálfstæði, gleði og sköpun barna sem og virðingu þeirra fyrir sjálfum sér og öðrum.

Í ágúst flytur starfsemi Hádegishöfða í nýtt húsæði sem nú er í byggingu og verður þar með þriggja deilda leikskóli.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfisbréf sem kennari (leyfisbréf fylgiumsókn). Ef ekki fæst kennari verður ráðinn starfsmaður með aðra uppeldsmenntun eða leiðbenandi
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Áhugi á að vinna með börnum
  • Sveigjnleiki, áreiðanleiki og stundvísi
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta

Nánar um Hádegishöfða www.hdegishofdi.is

Umsóknarfrestur er til 12. apríl nk.

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Þeir sem ráðnir eru til starfa hjá leikskólanum þurfa að veita heimild til að leitað sé upplýsinga úr sakaskrá hjá Ríkissaksóknara.

Einstaklingar af öllum kynjum eru hvött til að sækja um stöðuna.

Nánari upplýsingar veitir Guðmunda Vala Jónasdóttir leikskólastjóri í síma 470 0670 eða á netfanginu [email protected].

Öllum umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og/eða fyrri störf og kynningarbréf.

Tekið er við umsóknum í starfið á heimasíðu Múlaþings www.mulathing.is undir flipanum „laus störf“ eða á ráðningarvef Alfreðs: Lausar stöður leikskólakennara | Leikskólinn Hádegishöfði Fellabæ (alfred.is).

Umsækjendum er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþins á persónuupplýsingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimasíðu svetiarfélagsins www.mulathing.is.

 

Secret Link