Lausar stöður í leik-, grunn- og tónlistarskóla á Seyðisfirði

Grunnskóladeild

a) Grunnskólakennarar í list- og verkgreinum : Smíði, sjónlistir, handmennt, heimilisfræði, leiklist, dans og tónmennt. Um er að ræða uþb 40 % hlutfall við hverja kennslugrein.

Leikskóladeild

a) Aðstoðarskólastjóri : Fullt starf.

b) Leikskólakennarar : Auglýst er eftir tveimur leikskólakennurum til starfa við fyrir næsta skólaár.

Listadeild

a) Aðstoðarskólastjóri : Fullt starf stjórnun og kennsla.

b) Tónlistakennari : Hlutastarf, meðal kennslugreina blásturshljóðfæri og strengir.

Stoðdeild

a) Umsjónarmaður með Félagsmiðstöð 30% starf á ársgrundvelli. Viðvera  með nemendum tvo seinniparta í viku.

b) Stuðningsfulltrúi með nemendum í bekk 80% staða: aðstoð í bekk, ræsting og gæsla 20%

c) Starfsmaður í mötuneyti skólans 75% staða á árs grundvelli. Vinnutími frá 09:00 – 16:00 á starfstíma nemenda í grunnskóladeild.

Seyðisfjarðaðarskóli – ný staða 

a) Sérkennslustjóri : Staða sérkennslustjóra við leikskóla- og grunnskóladeild. Fullt starf sjá nánar á tengli


Almennar kröfur og upplýsingar um öll störf við Seyðisfjarðarskóla

Við leitum að hæfu fólki til starfa við skólann sem hefur áhuga á starfi með börnum og fullorðnum í anda skólastefnu og heilsueflandi skóla. Um allar auglýstar stöður gildir eftirfarandi:

 Hæfniskröfur :

  • Menntun og reynsla sem nýtist í starfi.
  • Metnaður fyrir skapandi skólastarfi og umhverfisvænum vinnubrögðum í anda skólastefnu Seyðisfjarðarskóla og heilsueflandi leik- og grunnskóla.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Sveigjanleiki, lausnamiðun, stundvísi og áreiðanleiki.
  • Góð íslenskukunnátta.

Öll kyn eru hvött til að sækja um.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi KÍ og AFL eftir atvikum.

Umsóknarfrestur til og með 24. apríl 2020 

Við ráðningu skal liggja fyrir sakavottorð eða heimild skólastjóra til að afla upplýsinga úr sakaskrá skv. lögum.

Gögn um menntun og/eða leyfisbréf og ferilskrá skulu fylgja með umsókn ásamt upplýsingum um meðmælendur.

Upplýsingar um störfin, skólann og annað, veitir skólastjóri í síma 771-7217, netfang [email protected]

Sjá nánar um skólann hér.

Secret Link