Laus til umsóknar 80% staða sjúkraliða á hjúkrunarheimilinu Uppsölum.

Hjúkrunarheimilið Uppsalir, Fáskrúðsfirði
Sjúkraliði
Laus er til umsóknar 80% staða sjúkraliða á hjúkrunarheimilinu Uppsölum.
Um er að ræða vaktavinnu og þarf viðkomandi að geta hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð:
Í starfinu felst ábyrgð á öllum almennum verkefnum sjúkraliða samkvæmt lögum og
reglugerðum. Í starfinu felst einstaklingsmiðuð aðstoð og umönnun við íbúa heimilisins.

Hæfniskröfur:
• Umsækjandi skal hafa lokið sjúkraliðanámi frá viðurkenndri menntastofnun og hafa gilt starfsleyfi.
• Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum.
• Rík þjónustulund.
• Hreint sakavottorð.

Frekari upplýsingar um starfið:
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sjúkraliðafélags Íslands og
Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil ásamt
prófskírteinum og starfsleyfi. Umsókn ásamt fylgigögnum skal skilað á netfangið
[email protected].
Umsóknarfrestur er til og með 21. febrúar 2020.

Nánari upplýsingar veita:
Ragnar Sigurðsson, framkvæmdastjóri – [email protected].
Elín Hjaltalín, hjúkrunarforstjóri – [email protected].