Laus staða sérfræðings
Laus staða sérfræðings hjá Félagsþjónustu Múlaþings. Um er að ræða 100% stöðugildi í barna- og fjölskylduvernd.
Við höfum mikið að gera í snemmtækum stuðningiog vandaðri þjónustu við barnafjölskyldur og leggjum áherslu á að búa starfsmönnum okkar góðar og fjölskylduvænar starfsaðstæður. Við leggjum áherslu á að starfsfólk okkar hafi rúm til þess að sinna störfum sínum af fagmennsku. Næsti yfirmaður er félagsmálastjóri.
Félagsráðgjafi eða sérfræðingur með skylda menntun, starfar í teymi Austurlandslíkansins er kemur að málefnum barna og fjölskyldna í samstarfi við skóla, leikskóla og heilsugæslu. Teymið starfar að hluta til í leik- og grunnskólum þeirra sveitarfélaga sem standa að Félagsþjónustu Múlaþings. Auk þess að sitja í teyminu, starfar sérfræðingur innan fjölskyldusviðs og sinnir m.a. barnaverndarmálum ásamt öðrum þeim störfum sem almennt tilheyra sviðinu.
Viðkomandi starfar meðal annars eftir barnaverndarlögum nr. 80/2002, farsældarlögum nr. 86/2021, lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, lögum um málefni fatlaðs fólks með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018, stjórnsýslulögum nr. 37/1993 og öðrum lögum er lúta að sviðinu.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Starfsréttindi í fleágsráðgjöf eða menntun á uppeldis- eða heibrigðissviði
- Þekking og reynsla af félagsþjónustu og barnavernd er kostur
- Geta og vilji til samvinnu og hæfni til að starfa í teymi og hugsa í lausnum
- Reynsla af starfi í opinberri stjórnsýslu er kostur
- Góð alhliða tölvukunnátta, þekking á OneSystems er kostur
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góðir samskiptahæfileikar og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
- Bílpróf
Umsóknarfrestur er til og með 26. apríl 2023.
Starfið er laust nú þegar. Öllum umsóknum verður svarað.
Öllum umsóknum skal fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf sem greinir frá ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni í starfið.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Alexandersdóttir, verkefnastjóri barnaverndar og Austurlandslíkans á netfanginu [email protected] og í síma 470 0700.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Fólk af öllum kynjum eru hvött til að sækja um stöðuna.
Vinnustaðir Múlaþings eru reyklausir og fjölskylduvænir.
Þeir sem ráðnir eru til starfa hjá félagsþjónustu þurfa að veita heimild til að leitað sé upplýsigna úr sakaskrá hjá Ríkissaksóknara.
Umsækjendum er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is