Laus staða deildarstjóra

Bjarkatún auglýsir lausa til umsóknar stöðu deildarstjóra frá og með 8. ágúst 2023.

Leikskólinn Bjarkatún er 2 deilda leikskóli með 30 börn staðsettur á Djúpavogi sem þekkt er fyirr fallegt umhverfi og útivistarsvæði. Leikskólinn vinnur eftir hugmyndafræði Cittaslow og Uppeldi til ábyrgðar. Samvinna, traust og virðing eru lykilorð okkar í leikskólanum.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu Deildarstjóra
  • Að bera ábyrgð á uppeldis- og menntunarstarfinu sem fram fer á deildinni
  • Að sjá um skipulagningu, stjórnun og mat á starfi deildarinnar
  • Að bera ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá
  • Að bera ábyrgð á foreldrasamvinnu

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfisbréf sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Reynsla af starfi deildarstjóra í leikskóla er æskileg
  • Reynsla af vinnu í leikskóla er æskileg
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Áhugi á að vinna með börnum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta

Nánari upplýsingar um leikskólann: www.bjarkatun.is

Umsóknarfrestur er til 15. júní n.k.

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga ivð viðkomandi stéttarfélag.

Einstaklingar af öllum kynjum eru hvött til að sækja um stöðuna.

Nánari upplýsingar veitir Guðrún Sigríður Sigurðardóttir, leikskólastjóri, í síma 470 8720 eða á netfanginu [email protected]

Hægt er að sækja um starfið í gegnum ráðningarvef Alfreðs: Laus staða deildarstjóra | Leikskólinn Bjarkatún Djúpavogi (alfred.is) eða á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is undir „laus störf“