Launafulltrúi – HSA
Launafulltrúi HSA Heilbrigðisstofnun Austurlands óskar eftir að ráða launafulltrúa til starfa. Um er að ræða 100% starf eða eftir nánara samkomulagi. Staðan veitist frá 1. apríl 2021 eða eftir nánara samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfar við launafærslur og launakeyrslur undir verkstjórn framkvæmdastjóra fjármála- og framkvæmdastjóra mannauðs. Launafulltrúi hefur með höndum flókin verkefni sem krefjast mikillar einbeitingar og aðgæslu.
Hæfnikröfur
Menntun á sviði bókhalds, rekstrar eða viðskiptafræði er kostur. Góð þekking og reynsla af launavinnslu, góð tölvukunnátta og færni í Excel er nauðsyn. Þekking á Oracle mannauðskerfi ríkisins er kostur. Þekking á kjarasamningum og lögum um réttindi og skyldur starfsmanna æskileg. Krafist er Íslensku kunnáttu í ræðu og riti. Krafist er góðrar skipulagningar og nákvæmni í vinnubrögðum, góðrar þjónustulundar og mikillar færni í mannlegum samskiptum.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kjarafélag viðskipta- og hagfræðinga hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Áskilinn er réttur til að hafna umsóknum ef einstaklingar uppfylla ekki framangreind skilyrði. Tóbaksnotkun/Vape er ekki heimil á vinnutíma innan HSA. HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 16.03.2021
Nánari upplýsingar veitir
Svava I Sveinbjörnsdóttir – [email protected] – 470-1435/892-3092
Emil Sigurjónsson – [email protected] – 470-3053/895-2488