Launafulltrúi – afleysingarstarf í eitt ár

Fjármáladeild Múlaþings auglýsir starf launafulltrúa til afleysinga vegna leyfis, í 80-100% starfshlutfall. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. september nk. og er ráðið í eitt ár. Leitað er að jákvæðum og metnaðarfullum einstaklingi sem er tilbúinn að takast á við krefjandi og lífleg verkefni á stórum vinnustað.

Starfsfólk Múlaþings er að jafnaði um 650 talsins, sem starfa í mjög fjölbreyttum störfum en auk þess sér launadeild um greiðslu launa til kjörinna fulltrúa. Launafulltrúi er hluti af mannauðs-og launateymi sveitarfélagsins en í því starfa í dag fjórir einstaklingar.

Næsti yfirmaður er fjármálastjóri.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Launavinnsla og skráning í launa-, mannauðs- og viðverukerfi.
  • Vinnsla gagna og skýrslugerð vegna launa- og kjaramála.
  • Ýmsar greiningar, samantektir og úrvinnsla tengd launamálum.
  • Samskipti við stéttarfélög, lífeyrissjóði og opinbera aðila.
  • Ráðgjöf til starfsfólks og stjórnenda varðandi kjara- og launamál.
  • Sjá til þess að kjarasamningum sé framfylgt að hálfu sveitafélagsins og að réttur aðila sér virtur.

Launafulltrúi skal leggja áherslu á vandvirkni í starfi og skal vera kunnugt um lög og reglur sem um meðferð upplýsinga og gagna í launavinnslu sveitarfélagsins gilda.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Stúdentspróf og/eða önnur menntun og reynsla sem nýtist í starfi.
  • Mjög góð tölvukunnátta og færni í excel skilyrði.
  • Reynsla og þekking af launavinnslu og kerfum því tengdu (H3 og Vinnustund) mikill kostur.
  • Þekking á kjarasamningum og réttindum og skyldum starfsfólks.
  • Góð starfræn hæfni og leikni í upplýsingatækni.
  • Áhugi að tileinka sér nýjungar í ört tæknivæddari heimi.
  • Samskipta- og skipulagshæfni, frumkvæði, sjálfstæði og metnaður í starfi.
  • Góð þjónustulund, nákvæm, öguð og heiðarleg vinnubrögð.
  • Góð íslenskukunnátta í máli og riti skilyrði.
Fríðindi í starfi

Heilsueflingarstyrkur.

Secret Link