Launafl ehf leitar að öflugum vélvirkja í 100% starf.
Launafl ehf. er fjölbreytt og öflugt iðnfyrirtæki í Fjarðabyggð. Fyrirtækið hefur byggt upp sterkt teymi sérfræðinga með víðtæka reynslu á flestum sviðum iðnaðar. Hjá Launafli starfa um 100 einstaklingar sem þjónustar breiðan hóp viðskiptavina.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn vélvirkjastörf
- Viðhald og viðgerðir á vélbúnaði
- Bilanagreining
- Nýsmíði og sérverkefni
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sveinspróf í vélvirkjun er kostur
- Reynsla í faginu
- Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
- Góð samskiptahæfni og jákvætt viðmót