Landvörður

Umhverfisstofnun óskar eftir að ráða landvörð í tímabundið sumarstarf á Austurland. Starfssvæðið nær yfir Fjarðabyggð og Múlaþing (Fljótsdalshérað), með áherslu á Helgustaðanámu og Hólmanes.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjón og eftirlit með starfssvæðum
  • Gæta þess að ákvæðum náttúruverndarlaga og sérlaga, friðlýsingarskilmála og stjórnunar- og verndaráætlana svæða sé fylgt
  • Upplýsa og fræða gesti um náttúru og sögu svæðanna, m.a. með fræðslugöngum
  • Sinna viðhaldi innviða og halda við merktum gönguleiðum
  • Bregðast við ef slys ber að höndum

Hæfnikröfur

  • Landvarðanámskeið eða nám sem Umhverfisstofnun telur samsvarandi er krafa
  • Gild ökuréttindi er krafa
  • Gild skyndihjálparréttindi er krafa. Boðið verður upp á námskeið í fyrstu hjálp í vor
  • Góð færni í samskiptum er mikilvæg
  • Reynsla af landvörslustörfum er kostur
  • Þekking á viðkomandi starfssvæði er kostur
  • Góð kunnátta í íslensku og ensku er mikilvæg og frekari tungumálakunnátta er kostur
  • Reynsla af útivist og náttúrutúlkun, skálavörslu, björgunarsveitarstörfum og leiðsöguréttindi eru kostir

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og AFL Starfsgreinafélag hafa gert.
Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 15.02.2021

Nánari upplýsingar veitir

Lára Björnsdóttir – [email protected] – 5912000

Smelltu hér til að sækja um starfið

Secret Link