Landvörður Teigarhorni – sumarstarf

 

Sveitarfélagið Múlaþing auglýsir eftir landverði á Teigarhorni í Berufirði. Um sumarstarf er að ræða. Æskilegt er að starfsmaður geti hafið störf 15. maí nk. og starfi út ágúst.

Umsækjandi þarf að verða sér úti um húsnæði búi viðkomandi ekki á nærsvæði.

Teigarhorn við Berufjörð er friðlýst sem fólkvangur og hluti jarðarinnar er náttúruvætti, á svæðinu starfar landvörður sem vaktar svæðið og veitir allar helstu upplýsingar. Innan marka jarðarinnar er einn merkasti fundarstaður geislasteina (zeólíta) í heiminum.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Almenn landvarsla
  • Eftirlit með svæðinu, reglulegar eftirlitsferðir, týna rusl úr fjörum
  • Fræðslugöngur
  • Sinna æðarvarpi
  • Fylgjast með fulga- og dýralífi svæðisins
  • Vakti dreifingu ágengra framandi tegunda á svæðinu og upprætir eftir föngum
  • Móttaka gesta í steinasafni og fræðsla
  • Vakta ástand stíga og gönguleiða reglulega m.t.t. öryggis og ástands og gerir ráðstafanir í samráði við umsjónaraðila svæðisins til að tryggja öryggi og bæta úr ástandi ef þörf krefur…
  • Útgáfa veiðileyfa
  • Ýmis viðhaldsvinna
  • Daglegar úrkomumælingar

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Viðkomandi þarf að vera orðinn 18 ára
  • Bílpróf er skilyrði
  • Reynsla af landsvörslu er kostur
  • Landvarðarréttindi er kostur
  • Krafa um frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Góð færni í mannlegum samskiptum
  • Skipulögð og fagleg vinnubrögð
  • Tungumálakunnátta er kostur
  • Þekking á svæðinu er kostur

Fríðindi í starfi

  • Tenging við einstaka náttúru og menningarminjar á Teigarhorni

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins og viðkomandi stéttarfélags. Öllum umsóknum skal fylgja kynningarbréf og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

Vinnustaðir Múlaþings eru tóbakslausir og fjölskylduvænir.

Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Rúnar Mattíasson, í síma 470 0766 og á netfanginu [email protected].

Umsækjendum er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimasíðu svetiarfélagsins www.mulathing.is

Umsóknarfrestur er til og með 28. febrúar og hægt er að sækja um starfið í gegnum ráðningarvef Alfreðs: Landvörður Teigarhorni – sumarstarf | Teigarhorn (alfred.is) eða á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is undir „laus störf“.

Secret Link