Landvörður á Austurlandi
Umhverfisstofnun leitar að landverði fyrir Austurland.
Helstu verkefni
Störf landvarða felast í að gæta þess að ákvæði náttúruverndarlaga,
sérlaga, friðlýsingarskilmála og stjórnunar- og verndaráætlana svæða
séu virt. Landverðir koma á framfæri upplýsingum og fræða gesti um
náttúru og sögu svæðanna, viðhald innviða og halda við merktum
gönguleiðum.
Landverðir taka virkan þátt í teymi sérfræðinga og landvarða.
Ítarlegri upplýsingar
Ítarlegri upplýsingar um störfin og hæfniskröfur til þeirra er að finna á
starfatorg.is og á umhverfisstofnun.is.
Umsóknarfrestur er til og með 2. desember 2019.