Kvenkyns starfsmaður í afleysingar við Íþróttamiðstöðina á Egilsstöðum

Auglýst er eftir kvenkyns starfsmanni í afleysingar við Íþróttamiðstöðina á Egilsstöðum.
Vinnutími er frá 8:30 til 15:00 virka daga. Starfið er laust í febrúar 2020.

Starfið felur í sér:

  •  Eftirlit og gæsla í íþróttamiðstöð.
  •  Almennri afgreiðslu.
  •  Þjónusta við gesti íþróttamiðstöðvar.
  •  Almenn þrif.
  •  Annað það sem til fellur.

Hæfniskröfur:

  •  Snyrtimennska, góð samskiptahæfni og rík þjónustulund.
  •  Metnaður, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  •  Góð málakunnátta s.s. íslenska, enska, þriðja tungumál kostur.
  •  Reynsla af starfi í íþróttahúsi er kostur.

Allar frekari upplýsingar veitir Karen Erla Erlingsdóttir, forstöðumaður íþróttamiðstöðvarinnar, í síma 860 3139 eða á netfanginu [email protected].

Umsóknarfrestur er til og með 1. janúar 2020.

Umsóknir berist til Íþróttamiðstöðvarinnar á Egilsstöðum, Tjarnarbraut 26, Egilsstöðum eða á netfangið [email protected].

Secret Link