Kjörbúðin Seyðisfirði Verslunarstjóri

Kjörbúðin á Seyðisfirði leitar eftir verslunarstjóra í fullt starf.

Kjörbúðin er skemmtilegur og líflegur vinnustaður og hentar starfið einstaklingum af öllum kynjum.

Verslunarstjóri ber ábyrgð á rekstri verslunar og hefur umsjón með almennri starfsmannastjórnun.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ábyrgð á rekstri verslunar
  • Samskipti við viðskiptavini og birgja
  • Ábyrgð á vöruframsetningu og áfyllingum
  • Ábyrgð á birgðahaldi í verslun
  • Önnur tilfallandi störf
  • Áfyllingar á vörum
  • Afgreiðsla
  • Þjónusta við viðskiptavini
  • Framstillingar

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun í viðskkipta- eða verslunarfræðum mikill kostur
  • Marktæk reynsla af stjórnun hjá verslunar- og/eða þjónustufyrirtæki
  • Styrkleiki í mannlegum samskiptum, sjálfstæð vinnubrögð, skipulagshæfni og reglusemi

Fríðindi í starfi

  • Heilsustyrkur til starfsmanna í boði
  • Tækifæri til menntunar
  • Velferðaþjónusta Samkaupa
  • Afsláttarkjör í verslunum Samkaupa

Samkaup hf. hefur hlotið titilinn Menntafyrirtæki atvinnulífsins 2022 og einnig jafnlaunavottun Jafnréttisstofu.

Samkaup hf. rekur yfir 60 verslanir víðsvegar um landið. Þær spanna allt frá lágvöruverðsverslunum til þægindaverslana. Helstu verslunarmerki Samkaupa eru: Nettó, Kjörbúðin, Krambúðin, Iceland og Samkaup strax. Hjá félaginu starfa um 1400 starfsmenn í rúmlega 700 stöðugildum.

Samkaup státar af öflugri jafnréttisstefnu sem nær ekki einungis til jafnréttis kynjanna heldur beinis einnig að hinsegin starfsfólki, erlendu starfsfólki og starfsfólki með skerta starfsgetu. Jafnréttisstefnan kallast Jafnrétti fyrir alla – Samkaup alla leið! Og er stefna sem unið markvisst eftir á öllum starfsstöðvum Samkaupa.

Umsóknarfrestur er til og með 6. september 2023 og hægt er að sækja um í gegnum ráðningarvef Samkaupa: Kjörbúðin Seyðisfirði Verslunarstjóri – 50skills