Kjörbúðin Djúpavogi – Verslunarstjóri

Kjörbúðin Djúpavogi leitar að jákvæðum, ábyrgðarfullum og kraftmiklum verslunarstjóra í fullt starf sem hefur gaman af mannlegum samskiptum.

Umsóknarfrestur: 30.11.2019

Starfssvið:

· Ábyrgð á rekstri verslunar.

· Samskipti við viðskiptavini og birgja.

· Umsjón með ráðningu starfsmanna og almennri starfsmannastjórnun í verslun.

· Ábyrgð á vöruframsetningu og áfyllingum.

· Ábyrgð á birgðahaldi í verslun.

· Önnur tilfallandi störf.

Hæfniskröfur:

· Marktæk reynsla af stjórnun og starfsmannahaldi hjá verslunar- og/eða þjónustufyrirtækjum.

· Styrkleiki í mannlegum samskiptum, sjálfstæð vinnubrögð, skipulagshæfni, reglusemi og árvekni í hvívetna.

Allar nánari upplýsingar er hægt að fá hjá Heiðari Róberti rekstrarstjóra Kjörbúðanna – [email protected]