Kennsluráðgjafi hjá skólaþjónustu Múlaþings
Kennsluráðgjafi með áherslu á upplýsingatækni.
Laus er til umsóknar 100% staða kennsluráðgjafa með áherslu á upplýsingatækni hjá skólaþjónustu Múlaþings. Næsti yfirmaður er fræðslustjóri.
Um framtíðarstarf er að ræða.
Kennsluráðgjafi veitir ráðgjöf til stofnana innan skólaþjónustu Múlaþings. Hann hefur umsjón ásamt öðrum í skólaþjónustu Múlaþings á endur- og símenntun starfsfólks og þróunarvinnu. Kennsluráðgjafi á að hafa yfirsýn yfir tækjabúnað skólanna og vera ráðgefandi um þróun kennsluhátta þar sem tæki styðja bætta kennsluhætti. Hann sinnir verkefnum í öllum stofnunum innan skólaþjónustunnar og ber ábyrgð á þeim verkefnum sem honum er falið hverju sinni. Kennsluráðgjafi hefur umsjón með tækjabúnaði og veitir kennslu og ráðgjöf á honum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ráðgjöf um breytta kennsluhætti með aðstoð upplýsingatækni
- Stuðningur við kennara í kennslustundum við innleiðingu nýrra kennsluhátta
- Ráðgjöf til skóla um hvaða tækni nýtist best hverju sinni
- Stuðningur við skólastjórnendur við stefnumótun á notkun tækja í skólastarfi
- Hafa umsjón ásamt öðrum í skólaþjónustu Múlaþings á endur- og símenntun starfsfólks og skóla
- Sýna frumkvæði að verkefnum og leitar eftir samstarfi við aðila innan skólasamfélagsins sem og utan um nýbreytni og þróunarstarf í samráði við skólastjórnendur og fræðslustjóra
- Kynnir sér nýjungar í tæknimálum og bættum kennsluháttum
- Sinna öðrum þeim verkefnum er fræðslustjóri felur kennsluráðgjafa hverju sinni sem varða málaflokkinn
- Hafa umsjón með Búnaðarbankanum og þróun hans
- Veita ráðgjöf og kennslu á tæki sem eru í Búnaðarbankanum
- Hafa umsjón með útláni og innkaupum á tækjabúnaði og veitir kennslu og ráðgjöf á honum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf kennara
- Framhaldsnám sem nýtisti í starfi er æskileg
- Góð íslenskukunnátta
- Mjög góð samskipta- og skipulagshæfni
- Góð þjónustulund og öguð vinnubrögð
- Sjálfstæði, frumkvæði og metnaður í starfi
- Rík ábyrgðartilfinning
- Vera tilbúin að tileinka sér nýjungar
- Krafa um bílpróf
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag.
Einstaklingar af öllum kynjum eru hvött til að sækja um stöðuna.
Nánari upplýsingar veita Sigurbjörg Hvönn Kristjánsdóttir fræðslustjóri, sími 470 0700 eða á netfanginu [email protected]
Öllum umsóknum skal fylgja starfsferilsskrá, upplýsingar um menntun og kynningarbréf sem greinir frá ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni í starfið.
Umsækjendur þurfa að veita heimild til að leitað sé upplýsinga úr sakaskrá hjá Ríkissaksóknara.
Umsækjendum er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is
Hægt er að sækja um starfið í gegnum ráðningarvef Alfreðs: Kennsluráðgjafi hjá skólaþjónustu | Fjölskyldusvið (alfred.is) eða á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is undir „laus störf“.