KENNARI VIÐ GRUNNSKÓLA FÁSKRÚÐSFJARÐAR
Kennara vantar til starfa við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar á vorönn 2022 með möguleika á framhaldsráðningu. Um er að ræða 80% starf við kennslu á yngsta stigi.
Starfið er laust frá 1. janúar 2022. Umsóknarfrestur er til 20. desember nk.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla skilyrði.
- Reynsla af kennslu yngri barna æskileg.
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
- Góð hæfni í samskiptum.
- Góðir skipulagshæfileikar.
Laun samkvæmt kjarasamningi KÍ og SNS.
Nánari upplýsingar veitir Eygló Aðalsteinsdóttir skólastjóri á [email protected] eða í síma 475-9020.