Kennari á yngsta- og miðstig
Grunnskólinn á Borgarfirði eystri er samrekinn leik- og grunnskóli sem starfar sem sjálfstæð deild undir Fellaskóla í Múlaþingi. Leitað er eftir metnaðarfullum og sveigjanlegum einstakling sem býr yfir frumkvæði og hefur getu til að vinna í teymi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Annast kennslu nemenda í samráði við skólastjórnendur, aðra kennara og foreldra
- Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
- Vinna samkvæmt stefnu skólans
Menntunar- og hæfniskröfur
- Kennaramenntun og leyfisbréf kennara
- Menntun og hæfni til almennrar kennslu á yngsta- og miðstigi
- Reynsla og áhugi á að starfa með börnum
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum og sveigjanleiki í starfi
- Faglegur metnaður
- Stundvísi og áræðanleiki
- Mjög góð íslenskukunnátta
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi sveitarfélagsins og Kennarasambands Íslands.
Umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og fyrri störf og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Umsækjendum er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjanda, sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is
Einstaklingar af öllum kynjum eru vattir til að sækja um stöðuna.
Þeir sem ráðnir eru til starfa hjá félagsþjónustu, skólum og frístund þurfa að veita heimild til að leitað sé upplýsinga úr sakaskrá hjá Ríkissaksóknara. Vinnustaðir Múlaþings eru reyklausir og fjölskylduvænir.
Umsóknarfrestur er til 1. júní 2022 og sótt er um starfið í gegnum ráðningarvef Alfreðs: Kennari á yngsta- og miðstig | Grunnskólinn Borgarfirði eystra | Fullt starf Borgarfjörður (eystri) | Alfreð (alfred.is)