Kennarastaða við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar

Laus er staða grunnskólakennara við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar. Í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar eru tæplega 100 nemendur. Skólinn er hluti af Skólamiðstöð þar sem náin samvinna er við leikskóla, tónlistarskóla og bókasafn. Nóg er af lausu húsnæði á Fáskrúðsfirði og í sveitarfélaginu. Mikil áhersla er lögð á teymisvinnu á öllum sviðum skólastarfsins og sameiginlegri ábyrgð í starfi, ekki síst í stjórnendateymi, umsjónarkennarateymum og lausnarteymi skólans. Í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar er mikil áhersla lögð á velferð nemenda og starfsfólks og litið svo á að hún sé lykillinn að árangri í öllum verkefnum. Unnið er í anda leiðsagnarnáms og byrjendalæsi. Unnið er eftir metnaðarfullri áætlun gegn einelti og lögð er áhersla á ART kennslu. Stefnumörkun skólans tekur meðal annars mið af uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar sem miðar að því að ýta undir ábyrgðarkennd og sjálfsstjórn barna og unglinga. Skólinn tekur virkan þátt í ýmsu þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð. Kjörorð skólans eru "ánægja, ábyrgð, árangur". Nánari upplýsingar um skólann er að finna á heimasíðu, www.fask.is. Leitað er að lausnarmiðuðum kennara sem er tilbúinn að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
●      Annast kennslu samkvæmt megin markmiðum Aðalnámskrá grunnskólanna með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda ●      Að vinna við námsmat í Mentor, nemendaskrár og aðrar nauðsynlegar skýrslur. ●      Að hafa hagsmuni nemenda að leiðarljósi og sýna hverjum og einum virðingu, áhuga og umhyggju. ●      Starfar með umsjónarkennurum og námsráðgjöfum og veitir upplýsingar um námsgengi einstakra nemenda. ●      Tekur þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skólans og sveitarfélagsins.
Menntunar- og hæfniskröfur
·       Leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari. ·       Íslenskukunnátta á stigi C1 skv. Evrópska tungumálarammanum ·       Samskipta og samstarfshæfni. ·       Frumkvæði og faglegur metnaður. ·       Ábyrgð í starfi og stundvísi. ·       Skipulagshæfileikar. ·       Áhugi á að taka þátt í teymisstarfi og umbótaverkefnum