Kennarar óskast til starfa
Fellaskóli í Múlaþingi auglýsir eftir kennurum fyrir skólaárið 2026/2027 með möguleika á framtíðarstarfi. Starfshlutfall getur verið samkomulag. Ráðið er í störfin frá 1. ágúst 2026.
- Kennara á unglingastig
- Kennara á miðstig
- List- og verkgreinakennara
- Íþróttakennara
Fellaskóli er notalegur lítill skóli með um 80 nemendur. Við störfum samkvæmt aðferðum leiðsagnarnáms og byrjendalæsis. Uppeldisstefna skólans er jákvæður agi. Við leggjum áherslu á útinám og höfum verið að þróa þá kennslu á öllum skólastigum undanfarin ár þar sem um samþættingu námsgreina og teymisvinnu er að ræða.
Næsti yfirmaður er skólastjóri Fellaskóla
Helstu verkefni og ábyrgð
- Annast kennslu nemenda í samráði i við skólastjórnendur og aðra kennara.
- Vinna samkvæmt stefnu skólans.
- Stuðla að vegferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Góð hæfni í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
- Reynsla og áhugi á að starfa með börnum.
- Góð skipulagshæfni, jákvæðni, frumkvæði og reynsla.
- Góð íslenskukunnátta.
- Vilji til að starfa í teymum.
- Hreint sakavottorð.
Fríðindi í starfi
Heilsueflingarstyrkur