KARLKYNS STARFSMENN VIÐ ÍÞRÓTTAMIÐSTÖÐ NORÐFJARÐAR

Lausar eru til umsóknar tvær 100% stöður karlkyns starfsmanna við Íþróttamiðstöð Norðfjarðar. Viðkomandi þyrfti að geta hafið störf sem fyrst. Athugið að starfshlutfall getur verið umsemjanlegt. Um framtíðarstarf er að ræða.

Í starfinu felst m.a.:

  • Eftirlit og gæsla með gestum íþróttahús og líkamsræktarstöðvar
  • Aðstoð við skólabörn, fyrir og eftir sund- og leikfimikennslu
  • Afgreiðsla og önnur þjónusta við börn og aðra gesti
  • Þrif

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af þjónustustörfum er æskileg
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Frumkvæði og skipulagshæfni
  • Hæfni í mannlegum samskiptum

Starfslýsing starfsmaður íþróttamannvirkis

Laun eru samkvæmt samningum launanefndar sveitafélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Frekari upplýsingar um störfin gefur Sigurjón Egilsson, forstöðumaður Íþróttamiðstöðvar Norðfjarðar í síma 863 7080 og í gegnum netfangið [email protected]

Umsóknarfrestur er til og með 28. febrúar 2022

Sótt er um á ráðningavef Fjarðabyggðar starf.fjardabyggd.is.

Secret Link