KARLKYNS STARFSMENN VIÐ ÍÞRÓTTAMIÐSTÖÐ NORÐFJARÐAR
Lausar eru til umsóknar tvær 100% stöður karlkyns starfsmanna við Íþróttamiðstöð Norðfjarðar. Viðkomandi þyrfti að geta hafið störf sem fyrst. Athugið að starfshlutfall getur verið umsemjanlegt. Um framtíðarstarf er að ræða.
Í starfinu felst m.a.:
- Eftirlit og gæsla með gestum íþróttahús og líkamsræktarstöðvar
- Aðstoð við skólabörn, fyrir og eftir sund- og leikfimikennslu
- Afgreiðsla og önnur þjónusta við börn og aðra gesti
- Þrif
Hæfniskröfur:
- Reynsla af þjónustustörfum er æskileg
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
- Frumkvæði og skipulagshæfni
- Hæfni í mannlegum samskiptum
Starfslýsing starfsmaður íþróttamannvirkis
Laun eru samkvæmt samningum launanefndar sveitafélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Frekari upplýsingar um störfin gefur Sigurjón Egilsson, forstöðumaður Íþróttamiðstöðvar Norðfjarðar í síma 863 7080 og í gegnum netfangið [email protected]
Umsóknarfrestur er til og með 31.mars 2022
Sótt er um á ráðningavef Fjarðabyggðar starf.fjardabyggd.is.