Íþróttaþjálfari hjá Einherja

Ungmennafélagið Einherji auglýsir eftir öflugum einstaklingi með menntun eða reynslu er tengis íþróttaþjálfun barna og unglinga.

Félagið leitar að einstaklingi sem tilbúinn er að móta nýja íþróttastefnu innan Einhverja í samstarfi við stjórn félagsins. Félagið stendur á tímamótum og kominn er tími á nýja nálgun og ferskar hugmyndir.

Miðað er við að stærsti hluti starfsins sé þjálfun og stefnumótun en æskilegt er að viðkomandi sé tilbúin að vinna um 30-50% sem framkvæmdastjóri félagsins. Laun og upphaf starfstímabils eru samningsatriði en miðað er við að viðkomandi hefji störf´i júní eða ágúst.

Æskilegt er að viðkomandi sé menntaður íþróttafræðingur eða hafi aðra sambærilega menntun og/eða reynslu af íþróttaþjálfun.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þjálfun barna og unglinga
  • Skipulag og stefnumótun íþróttastarfs
  • Framkvæmdastjóri félagsins

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun á sviði íþrótta æskileg
  • Góðir samskipta og skipulagshæfileikar
  • Metnaður og frumkvæði
  • Góð íslenskukunnátta
  • Hreint sakavottorð

Sótt er um starfið í gegnum ráðningarvef Alfreðs: Íþróttaþjálfari hjá Einherja | Ungmennafélagið Einherji | Fullt starf Vopnafjörður | Alfreð (alfred.is)

Secret Link