egilsstadaskoli

Íþróttakennari afleysingastarf

Íþróttakennara vanar til starfa við Egilsstaðaskóla vegna tímabundinna afleysinga frá og með 25. október og út þetta skólaár. Auglýst er eftir kennara í 85% starf.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast kennslu nemenda samkvæmt markmiðum aðalnámskrár grunnskóla í samráði við skólastjóra og aðra kennara með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda
  • Fylgjast með velferð nemenda, hlúa að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þeir fái notið sín sem einstaklingar
  • Taka þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skóla og sveitarfélags

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Kennsluréttindi skilyrði
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Skipulagshæfni

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins og Kennarasambands íslands.

Einstaklingar af öllum kynjum eru hvött til að sækja um stöðuna. Þeir sem ráðnir eru til starfa hjá Egilsstaðaskóla þurfa að veita heimild til að leitað sé upplýsinga úr sakaskrá hjá Ríkissaksóknara.

Nánari upplýsingar veitir Kristín Guðlaug Magnúsdóttir í síma 470 0607 eða á netfanginu [email protected]

Öllum umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og/eða fyrri störf og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

Umsækjendum er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is

Umsóknarfrestur er til og með 23. september 2022 og hægt er að sækja um starfið í gegnum ráðningarvef Alfreðs: Íþróttakennari afleysingastarf | Egilsstaðaskóli | Tímabundið Egilsstaðir | Alfreð (alfred.is)