Innkaupasérfræðingur / Procurement Specialist
Alcoa Fjarðaál leitar að öflugum sérfræðingi í tímabundið starf hjá innkaupateymi Alcoa Fjarðaáls. Innkaupateymið starfar undir innkaupasviði móðurfélagsins Alcoa Corporation og ber ábyrgð á útboðum, samningagerð, innkaupaferlum og mótun innkaupastefnu fyrirtækisins.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Greining þarfa og kostnaðar
- Útboð á vörum og þjónustu
- Samningar við birgja og verktaka
- Samskipti við beiðendur innkaupa
- Útgáfa og eftirfylgni innkaupapantana
- Þróun innkaupaferla og innkaupastefnu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Viðskiptafræði, lögfræði eða önnur hagnýt háskólamenntun
- Reynsla af innkaupum og samningagerð er æskileg
- Færni í greiningu gagna og miðlun upplýsinga
- Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði
- Teymishugsun og lipurð í samskiptum
- Gott vald á íslensku og ensku
Fríðindi í starfi
- Gott mötuneyti
- Rútuferðir til og frá vinnu
- Velferðaþjónusta