Innheimtufulltrúi
Laust er til umsóknar 75% starf innheimtufulltrúa á skrifstofu Múlaþings. Um afleysingarstarf er að ræða í eitt ár eða frá 1. júlí 2023 – 31. júlí 2024.
Næsti yfirmaður er fjármálastjóri Múlaþings.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Tekur þátt í gerð og útsendingu reikninga og krafna
- Fylgir eftir kröfum og sér til þess að þær fari í eðlilegt innheimtuferli
- Tekur við erindum sem varða innheimtu frá íbúum, fyrirtækjum og stofnunum og veitir upplýsingar til þeirra eftir þörfum
- Veita íbúum og öðrum sem til skrifstofunnar leita, faglega og góða þjónustu
- Mikil áhersla lögð á nákvæmni, trúnað, öryggi og vandvirkni í starfi
Menntunar- og hæfniskröfur
- Krafa um frammúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Reynsla af störfum stjórnsýslu kostur
- Þekking og/eða reynsla af skrifstofuvinnu, innheimtu og bókhaldi
- Góð tölvukunnátta skilyrði ásamt þekking á almennum tölvuforritum og leikni í upplýsingatækni
- Góð íslenskukunnátta skilyrði, og enskukunnátta kostur
- Góð þjónustulund, skipulögð og öguð vinnubrögð
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Öllum umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og/eða fyrri störf og kynningabréf.
Nánari upplýsingar veitir Guðlaugur Sæbjörnsson fjármálastjóri í síma 470 0700 eða á netfanginu [email protected]
Fólk af öllum kynjum eru hvött til að sækja um.
Vinnustaðir Múlaþings eru reyklausir og fjölskylduvænir.
Umsækjendum er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is
Umsóknarfrestur er til og með 14. maí 2023 og hægt er að sækja um starfið í gegnum ráðningarvef Alfreðs: Innheimtufulltrúi | Stjórnsýslu-og fjármálasvið (alfred.is) eða á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is undir „laus störf“.