Húsvörður

Leikskólinn Tjarnarskógur á Egilsstöðum auglýsir laust starf húsvarðar. Um er að ræða 50% framtíðarstarf og er vinnutími umsemjanlegur.

Húsvörður hefur eftirlit með húsnæði leikskólans Tjarnarskógar og öðrum eignum þeirra skóla.

Næsti yfirmaður er leikskólastjóri Tjarnarskógar.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Fylgist með ástandi húsa, muna, búnaðar og lóða og er tengiliður skólanna við þjónustumiðstöð Egilsstaða
  • Annast smávægilegt viðhald, sér um að hiti, lýsing og loftræsting húsnæðis sé fullnægjandi og að kerfin starfi rétt
  • Sér um flokkun og frágang sorps frá skólum og hreinsun á rusli á skólalóð
  • Útvegar sand eða snjómokstur á skólalóð

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun sem nýtist í starfi er æskileg s.s. iðnmenntun
  • Gerð er krafa um reynslu á þessu sviði
  • Krafa er um hæfni á þann búnað sem nauðsynlegur er vegna starfsins
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum, hæfileiki til samvinnu, sveigjanleika og tillitssemi
  • Frumkvæði í starfi, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð
  • Stundvísi og ábyrgð

Nánari upplýsingar um leikskólann Tjarnarskóg: www.tjarnarskogur.is

Umsóknarfrestur er til og með 6. september 2022 og hægt er að sækja um starfið í gegnum ráðningarvef Alfreðs: Húsvörður | Leikskólinn Tjarnarskógur | Hlutastarf Egilsstaðir | Alfreð (alfred.is)

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins og viðkomandi stéttarfélags.

Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um stöðuna.

Nánari upplýsingar veitir leikskólastjóri Sigríður Herdís í síma 470 0660 eða í tölvupósti á netfangið [email protected]

Öllum umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og/eða fyrri störf og kynningarbréf.

Umsækjendum er bent á að kynna sér fræðsubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimasíðu svetiarfélagsins www.mulathing.is

Þeir sem ráðnir er util starfa hjá félagsþjónustu, skólum og frístund þurfa að veita heimild til að leitað sé upplýsinga úr sakaskrá hjá Ríkissaksóknara. Vinnustaðir Múlaþings eru reyklausir og fjölskylduvænir.

Secret Link