Húsvörður

Við Egilsstaðaskóla er laust til umsóknar starf húsvarðar. Um er að ræða 100% starf og er ráðið í stöðuna frá 1. ágúst 2022. Starfið er fjölbreytt og felur í sér ýmis verkefni varðandi umsjón og viðhald.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Nánari upplýsingar veitir Ruth Magnúsdóttir skólastjóri á netfanginu [email protected] eða í síma 470 0605.

Öllum umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og/eða fyriir störf og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

Þeir sem ráðnir eru til starfa á Fjölskyldusvið Múlaþings þurfa að veita heimild til að leitað sé upplýsinga úr sakaskrá hjá Ríkissaksóknara.

Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um.

Umsækjendum er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjón og eftirlit með viðhaldi húss og húsgagna
  • Umsjón með eftirliti ýmis búnaðar s.s. loftræstingar
  • Umsjón með lóð og ræstingum

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Þarf að vera laghetur og hafa góða innsýn í tækni
  • Getur unnið sjálfstætt
  • Getur sýnt frumkvæði
  • Góð samskiptahæfni og skipulagshæfileikar

Sótt er um starfið í gegnum ráðningarvef Alfreðs: Húsvörður | Egilsstaðaskóli | Fullt starf Egilsstaðir | Alfreð (alfred.is)

Secret Link