
Húsvörður
Við leitum að sjálfstæðum og reynslumiklum einstaklingi til að hafa umsjón með fasteignum okkar, bæði hótelbyggingum, starfsmannaíbúðum og umhverfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almennt viðhald á hótelinu, starfsmannahúsnæði og umhverfi hótels
- Umsjón með sorpi
- Yfirsýn yfir samninga við verktaka
- Yfirsýn og umsjón með eldvarnarkerfi
Menntunar- og hæfniskröfur
- Geta unnið sjálfstætt og undir álagi
- Skipulagður í vinnu
- Iðnmenntun kostur
- Góð íslensk kunnátta
- Góðir samskiptahæfileikar, sveigjanleiki, jákvæðni og þjónustulund.
Umsóknarfrestur er til 1. Apríl 2022 og sótt er um starfið í gegnum ráðningarvef Alfreðs: Húsvörður | Gistihúsið – Lake Hotel Egilsstaðir | Fullt starf Egilsstaðir | Alfreð (alfred.is)