Húsasmiðjan leitar eftir starfskrafti
Við leitum að liðsauka á þjónustu – og kassasvæði Húsasmiðjunnar á Egilsstöðum. Um er að ræða fullt starf og 100% starfshlutfall. Við leitum að aðila sem hefur jákvætt hugarfar, hefur gaman að því að vera í miklum samskiptum og hefur metnað fyrir því að veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu.
Helstu verkefni gjaldkera á kassa er sala, afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini, almenn umhirða verslunar og önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af afgreiðslu- og kassastörfum er kostur
- Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
- Stundvísi, jákvæðni og heiðarleiki í starfi
- Gott vald á íslensku
Fríðindi í starfi
- Styrkir til heilsueflingar
- Aðgangur að orlofshúsum
- Afsláttarkjör í verslunum okkar