HSA óskar eftir starfsfólki í sumarafleysingar

SUMARSTÖRF 2019
HSA óskar eftir starfsfólki í sumarafleysingar á starfsstöðvum
stofnunarinnar í Neskaupstað, Fjarðabyggð, á Egilsstöðum, Seyðisfirði,
Djúpavogi og Vopnafirði.
Um er að ræða hjúkrunarfræðinga, lífeindafræðinga, sjúkraliða,
aðstoðarfólk í umönnun, móttökuritara og önnur störf s.s. í
eldhúsi, ræstingu og þvottahúsi.
Störfin eru á heilsugæslu-, hjúkrunar og sjúkrasviðum HSA.
ÓTÍMABUNDIN STÖRF
• Starfsmaður í þjónustudeild, Neskaupstað.
Nánari upplýsingar og rafrænt umsóknarform er að finna á vef HSA www.hsa.is
undir flipanum Laus störf.
Einnig birt á starfsauglýsingavef ríkisins www.starfatorg.is.

HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin
þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús
Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins.
HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.