Hótelstjóri – Fosshótel Austfirðir

Við leitum að öflugum hótelstjóra á Fosshótel Austfirði.

Hótelstjóri skipuleggur og stýrir daglegum rekstri hótelsins þ.á.m. gestamóttöku, bókunum, veitingastað, þrifum, viðhaldi fasteignar og mannauðsmálum. Hótelstjóri vinnur náið með aðalskrifstofu í sölu og markaðsmálum og sér til þess að hótelið uppfylli gæðastaðla og rekstraráætlun fyrirtækisins. Hótelstjóri leiðir stóran hóp starfsmanna og ber ábyrgð á hagkvæmum rekstri með velferð og ánægju starfsmanna og gesta að leiðarljósi.

Starfstími er 1. apríl til 15. október

Hæfniskröfur

  • Árangursrík reynsla sem stjórnani í hótel og/eða veitingarekstri
  • Menntun á sviði hótelstjórnunar eða iðnnám í fram- eða matreiðslu kostur
  • Afbragðs færni í samskiptum, jákvætt viðmót og rík þjónustulund
  • Frumkvæði, sjálfstæði, nákvæmni og skipulag í vinnubrögðum
  • Fjármálalæsi og greiningarhæfni
  • Góð kerfis- og tölvukunnátta, þekking á Cenium, navison og H3 kostur

Ábyrgð

  • Fagleg stjórnun, leiðsögn, samræming og þróun starfsmanna
  • Fjármál og rekstargreiningar
  • Þjónustu-, gæða- og öryggisstjórnun
  • Verkefna- og ferlastýring
  • Rekstur og viðhald fasteignar

Hlutverk Íslandshótela er einstök gestrisni

Öflug liðsheild Íslandshótela starfar samkvæmt eftirfarandi gildum:

Fagmennska – Heiðarleiki – Samvinna – Kjarkur

Umsækjendur eru beðnir að senda inn umsókn ásamt ferilskrá og kynningarbréfi.

Óskir um nánari upplýsingar sendist á Ernu Dís Ingólfsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðssviðs, ernadis@islandshotel.is eða Hjört Valgeirsson, framkvæmdastjóra rekstarsviðs hjortur@islandshotel.is

 

Farið verður með allar fyrirspurning og umsóknir sem trúnaðarmál. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknarfrestur er til og með 26. febrúar 2022