Hjúkrunarfræðingur – Neskaupstaður

Hjúkrunarfræðingur – Neskaupstaður – Sjúkradeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands
Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing á sjúkradeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands í Neskaupstað. Starfshlutfall er 80 – 100% eða samkvæmt samkomulagi. Vaktavinna. Gott ef viðkomandi gæti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð
Almenn hjúkrunarfræðingsstörf á hand- og lyflækningadeild. Umdæmissjúkrahús Austurlands sinnir bráðaþjónustu fyrir allt Austurland.

Hæfnikröfur
Krafist er íslensks hjúkrunarleyfis. Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun/Vape er ekki heimil á vinnutíma innan HSA. HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Vinnutímaskipulag: Vaktavinna
Starfshlutfall: 100%
Starfssvið: Heilbrigðisþjónusta
Stéttarfélag: Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Umsóknarfrestur er til: 04.12.2020
Nánari upplýsingar veitir
Þórhalla Ágústsdóttir – [email protected] – 470-1453 & 891-9419
Sigríður Kristinsdóttir – [email protected] – 470-1450 & 864-0239

Smelltu hér til að sækja um starfið
https://radningarkerfi.orri.is/?s=23034