Hjúkrunarfræðingur – Fjarðabyggð – heilsugæsla – afleysing

Hjúkrunarfræðingur – Fjarðabyggð – heilsugæsla – afleysing

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing í afleysingarstöðu til starfa í heilsugæslunni í Fjarðabyggð. Starfshlutfall er 80% eða skv. samkomulagi. Gott ef viðkomandi getur byrjað sem fyrst eða eftir samkomulagi. Staðan veitist til 31. ágúst 2022.

Helstu verkefni og ábyrgð

Almenn heilsugæslumóttaka og heilsuvernd.

Hæfnikröfur

Íslenskt hjúkrunarleyfi er skilyrði. Sérnám í heilsugæsluhjúkrun er kostur og/eða reynsla af vinnu á heilsugæslu. Lögð er áhersla á metnað í starfi, stundvísi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Íslenskukunnátta áskilin. Ökuréttindi nauðsynleg.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun/notkun rafretta er ekki heimil á vinnutíma innan HSA. HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

  • Vinnutímaskipulag: Dagvinna
  • Starfshlutfall: 80%
  • Starfssvið: Heilbrigðisþjónusta
  • Stéttarfélag: Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
  • Umsóknarfrestur er til: 30.10.2020

Nánari upplýsingar veitir

Guðrún Pétursdóttir – [email protected] – 470-1428 & 618-1904
Jónína Guðrún Óskarsdóttir – [email protected] – 470-3081 & 865-5737


Fjarðabyggð Heilsugæsla
Strandgötu 31
735 Eskifjörður

Smelltu hér til að sækja um starfið

Secret Link