Hjúkrunarfræðingur á heilsugæslu

Við leitum að jákvæðum og öflugum hjúkrunarfræðingi til að hafa umsjón með heilsugæslu Alcoa Fjarðaáls. Heilbrigði og vellíðan starfsmanna eru forgangsmál hjá okkur og heilsugæslan í álverinu er hluti af fjölbreyttri þjónustu mannauðsteymis fyrirtækisins.

Hjúkrunarfræðingar manna heilsugæsluna á virkum dögum og læknar hafa þar reglulega viðveru.

Ábyrgð og verkefni

  • Umsjón með heilsufarsskoðun starfsmanna
  • Þjónusta vegna veikinda eða meiðsla
  • Upplýsingamiðlun og ráðgjöf
  • Samstarf og skipulag vegna viðveru lækna
  • Gagnavarsla og skýrslugerð
  • Umsjón með aðföngum
  • Eftirfylgni og umbætur á stöðlum og ferlum

Hæfniskröfur

  • Hjúkrunarfræðimenntun
  • Starfsreynsla í heilsugæslu æskileg
  • Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum
  • Sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum
  • Skipulagshæfileikar og nákvæmni
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Góð tölvukunnátta

Frekari upplýsingar veitir Elísabet Sveinsdóttir í tölvupósti á netfangið [email protected] eða í síma 843 7630.

Í samræmi við jafnréttisstefnu Alcoa Fjarðaáls og lög nr. 150/2020 eru einstaklingar af öllum kynjum hvattir til að sækja um. Hægt er að sækja um starfið á www.alcoa.is. Umsóknarfrestur er til og með mánudeginum 3. apríl 2023

Secret Link