Hjúkrunarfræðingur

Hjúkrunarfræðingur á heilsugæslu

Við leitum að jákvæðum og öflugum hjúkrunarfræðingi til starfa á heilsugæslu Alcoa Fjarðaáls. Heilbrigði og vellíðan starfsmanna eru forgangsmál hjá okkur og heilsugæslan í álverinu er hluti af fjölbreyttri starfsemi mannauðsteymis fyrirtækisins. Tveir hjúkrunarfræðingar manna heilsugæsluna á virkum dögum og læknar hafa þar reglulega viðveru.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Heilsufarsskoðanir starfsmanna
  • Fyrsta meðferð og þjónusta vegna veikinda eða meiðsla
  • Upplýsingamiðlun og ráðgjöf
  • Samstarf og skipulag vega viðveru lækna
  • Gagnaversla og skýrslugerð
  • Umsjón með aðföngum
  • Eftirfylgni og viðhald staðla og ferla

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Hjúkrunarfræðimenntun
  • Starfsreynsla í heilsugæslu æskileg
  • Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum
  • Sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum
  • Skipulagshæfileikar og nákvæmni
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Góð tölvukunnátta

Fríðindi í starfi

  • Rútuferðir frá helstu byggðarkjörnum
  • Mötuneyti
  • Íþrótta og meðferðarstyrkir

Frekari upplýsingar veitir Birgitta Inga Birgisdóttir í tölvupósti [email protected] eða í síma 843 7770.

Í samræmi við jafnréttisstefnu Alcoa Fjarðaáls og lög nr. 150/2020 eru einstaklingar af öllum kynjum hvattir til að sækja um.

Hægt er að sækja um starfið á www.alcoa.is

Umsóknarfrestur er til og með mánudeginum 4. desember 2022

Secret Link