Hefur þú áhuga á að vinna á einum fallegasta stað landsins?

Hallormsstaðaskóli auglýsir eftir hugmyndaríkum einstaklingi ti lað bera ábyrgð á mötuneyti og þrifum í vottuðu eldhúsi Hallormsstaðaskóla. Hallormsstaðaskóli er staðsettur í hjarta Hallormsstaðaskógar, um 27 km frá Egilsstöðum. Hallormsstaðaskóli býður upp á heilsárs nám í Skapandi sjálfbærni, nemendur búa á heimavist auk þess sem skólinn stendur fyrir fjölda námskeiða sem opin eru almenningi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Húsfreyja hefur starfstöð í Hallormsstaðaksóla. Húsfreyja ber ábyrgð á mötuneyti og matseld, þrifum og þvotti. Hún sér um innkaup á matvöru og rekstarvörum fyrir ræstingu og hefur eftirlit með húseign auka annarra verka sem kunna að falla til á stóru heimili skólans. Húsfreyja veitir leiðsögn í vottuðu eldhúsi skólans og er nemendum og gestum innan handar varðandi þrif og umgengi almennt í skólanum. Áhersla er lögð á hollustu og gæði í hráefnisvali, markvissa nýtingu stað- og árstíðarbundins hráefnis ásamt því að vinna hráefnið frá grunni á staðnum. Mikilvægt er að viðkomandi hafi brennandi áhuga á matargerð og nýtingu hráefna úr náttúrunni, sé lipur í mannlegum samskiptum, sjálfstæður í vinnubrögðum, metnaðarufllur og gestrisinn.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun og/eða góð reynsla í matseld æskileg
  • Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð vinnubrögð
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Bílpróf og bíl til afnota

Fríðindi í starfi

Fullbúin íbúð í nágrenni skólans stendur til boða fyrir sanngjarnt leiguverð

Umsóknarfrestur er til og með 1. desember 2023 og hægt er að sækja um í gegnum ráðningarvef Alfreðs: Hefur þú áhuga á að vinna á einum fallegasta stað landsins? | Hallormsstaðaskóli (alfred.is)

Secret Link