Grunnskólafulltrúi

Fjölskyldusvið Múlaþings auglýsir lausa til umsóknar 60% stöðu grunnskólafulltrúa. Ráðið verður í stöðuna frá 1. ágúst nk. Um framtíðarstarf er að ræða.

Næsti yfirmaður er fræðslustjóri.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ráðgjöf, umsjón og eftirlitsverkefni í grunnskólum sveitarfélagsins í samráði við fræðslustjóra
  • Umsjón með ýmum þáttum framkvæmdar skólaþjónustu vegna grunnskóla
  • Skýrslugerð og stjórnsýsla sem tengist málaflokknum
  • Stuðningur við þróunar- og nýbreytnistarf í grunnskólum sveitarfélagsins í samráði við fræðslustjóra
  • Umsjón með skólaakstri

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfisbréf sem kennari skilyrði
  • Kennslureynsla úr grunnskólum og rík stjórnunarreynsla úr grunnskóla
  • Framhaldsmenntun á sviði uppeldis- og/eða kennslufræði æskileg
  • Reynsla af þróunar- eða nýbreytnistörfum í grunnskólastarfi kostur
  • Þekking og reynsla af störfum í opinberri stjórnsýslu er kostur
  • Reynsla af málakerfinu One-system kostur
  • Góð samskiptahæfni og þjónustulund
  • Frumkvæði, sjálfstæði, góð skipulagshæfni og færni til að vinna í hóp
  • Góð íslenskukunnátta í máli og ritun

Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningum viðkomandi stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um stöðuna.

Umsókn skal fylgja yfirlit yfir nám, leyfisbréf og yfirlit yfir fyrri störf ásamt rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

Nánari upplýsingar veitir Helga Guðmundsdóttir, fræðslustjóri í síma 470 0700, [email protected]

Umsækjendum er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is

Þeir sem ráðnir eru til starfa hjá félagsþjónustu, skólum og frístund þurfa að vita heimild til að leitað sé upplýsinga úr sakaskrá hjá Ríkissaksóknara. Vinnustaðir Múlaþings eru reyklausir og fjölskylduvænir.

Umsóknarfrestur er til og með 4. maí 2022 og sótt er um starfið í gegnum ráðningarvef Alfreðs: Grunnskólafulltrúi | Fjölskyldusvið | Hlutastarf Egilsstaðir | Alfreð (alfred.is)

Secret Link