Greiningarsérfræðingur í launaþjónustu
Alcoa Fjarðaál leitar að jákvæðum og hæfileikaríkum einstaklingi í starf greiningarsérfræðings í launaþjónustu. Greiningasérfræðingur sinnir launakeyrslum, greiningum á launakostnaði og upplýsingagjöf til starfsmanna og stjórnenda. Alcoa Fjarðaáls er eitt stærsta iðnfyrirtæki landsins með um 540 starfsmenn á launaskrá auk nærri 100 sumarstarfsmanna. Stefna fyrirtækisins er að vera eftirsóknarverður hátæknivinnustaður sem eykur lífsgæði með ábyrgri og hagkvæmri framleiðslu áls.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ýmis verkefni tengd launavinnslu
- Launatengd greiningarvinna og skýrslugerð
- Upplýsingagjöf til starfsmanna og stjórnenda
- Afleysing leiðtoga launaþjónustu
- Viðhald og þróun ferla í launavinnslu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Hagnýt háskólamenntun svo sem viðskiptafræði
- Þriggja ára starfsreynsla í launavinnslu eða fjármálum
- Góð þekking á gagnavinnslu og skýrslugerð í Excel
- Nákvæmni, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Færni í mannlegum samskiptum og upplýsingamiðlun
- Gott vald á íslensku og ensku
Fríðindi í starfi
- Íþrótta og meðferðarstyrkir
- Mötuneyti
- Rútuferðir frá helstu byggðarkjörnum
Frekari upplýsingar um starfið veitir Sunna Jóhannsdóttir, leiðtogi launaþjónustu, í tölvupósti [email protected] eða í síma 843 7950. Í samræmi við jafnréttisstefnu Alcoa Fjarðaáls og lög nr. 150/2020 eru einstaklingar af öllum kynjum hvattir til að sækja um.
Hægt er að sækja um starfið á www.alcoa.is
Umsóknarfrestur er til og með mánudeginum 21. nóvember