Greiningarsérfræðingur í launaþjónustu

Alcoa Fjarðaál leitar að jákvæðum og hæfileikaríkum einstaklingi í starf greiningarsérfræðings í launaþjónustu. Greiningarsérfræðingur sinnir launakeyrslum, greiningum á launakostnaði og upplýsingagjöf itl starfsmanna og stjórnenda. Alcoa Fjarðaál er eitt stærsta iðnfyrirtæki landsins með um 540 starfsmenn á launaskrá auk nærri 100 sumarstarfsmanna. Stefna fyrirtækisins er að vera eftirsóknarverður hátæknivinnustaður sem eykur lífsgæði með ábyrgri og hagkvæmri framleiðslu áls

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ýmis verkefni tengd launavinnslu
  • Launatengd greiningarvinna og skýrslugerð
  • Upplýsingagjöf til starfsmanna og stjórnenda
  • Afleysing leiðtoga launaþjónustu
  • Viðhald og þróun ferla í launavinnslu

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Hagnýt háskólamenntun svo sem viðskiptafræði
  • Þriggja ára starfsreynsla í launavinnslu eða fjámálum
  • Góð þekking á gagnavinnslu og skýrslugerð í Excel
  • Nákvæmni, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Færni í mannlegum samskiptum og upplýsingamiðlun
  • Gott vald á íslensku og ensku

Fríðindi í starfi

  • Rútuferðir frá helstu byggðarkjörnum
  • Mötuneyti
  • Íþrótta og meðferðarstyrkir

Frekari upplýsingar um starfið veitir Sunna Jóhannsdóttir, leiðtogi launaþjónustu, í tölvupósti [email protected] eða í síma 843 7950. Í samræmi við jafnréttisstefnu Alcoa Fjarðaáls og lög nr. 150/2020 eru einstaklingar af öllum kynjum hvattir til að sækja um.

Hægt er að sækja um starfið á www.alcoa.is

Umsóknarfrestur er til og með 1. desember.

 

Secret Link