Gestamóttökustjóri á Gistihúsinu Egilsstöðum
Við leitum að öflugum og reynslumiklum einstaklingi með framúrskarandi þjónustulund til að vinna í móttöku hótelsins.
Starfssvið:
- – Bera ábyrgð á sölu- og bókunarmálum hótelsins
- – Samskipti við innlenda og erlenda söluaðila
- – Fagleg móttaka gesta og upplýsingagjöf
- – Þjónusta, sala og úrlausn mála
- – Bókanir, innritun, símavarsla og uppgjör
- – Starfsmannamál
Hæfniskröfur:
- – Þekking og reynsla af sölu- og bókunarmálum hótela
- – Sjálfstæð vinnubrögð, sveigjanleiki, frumkvæði og samskiptafærni
- – Þjónustuvilji og vönduð framkoma
- – Góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli
- – Háskólamennstun sem nýtist í starfi er kostur
Umsóknarfrestur er til 10. janúar 2020
Umsóknum skal skilað á netfangið [email protected] einnig hægt að sækja um rafrænt á heimasíðunni www.gistihusid.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hulda Elisabeth Daníelsdóttir hótelstýra í síma 471 1114 eða 868 9703
Bæði konur og karlar eru hvött til að sækja um starfið. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.