Gæðastjóri hjá Loðnuvinnslunni hf., Fáskrúðsfirði
Gæðastjóri óskast til starfa hjá Loðnuvinnslunni hf., Fáskrúðsfirði.
Gæðastjóri hjá Loðnuvinnslunni ber ábyrgð á viðhaldi og þróun á gæðakerfi fyrirtækisins í samstarfi við aðra starfsmenn. Því er mikilvægt að viðkomandi vinni vel í teymi sem og sjálfstætt.
Helstu verkefni og ábyrgð
Innleiðing vottana
Viðhald og þróun á gæðakerfi
Samskipti við viðskiptavini
Þróun nýrra ferla
Forysta í gæðamálum
Menntunar- og hæfniskröfur
Menntun á sviði matvælafræði eða önnur menntun sem nýtist í starfi
Þekking á matvælavinnslu er æskileg
Þekking og/eða reynsla á innra eftirliti byggðu á HACCP
Æskilegt að þekkja BRC og/eða ISO
Reynsla af verkefnastjórnun er kostur
Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
Sjálfstæði í vinnubrögðum, frumkvæði, jákvæðni og góð samskiptahæfni