Fulltrúi sveitarstjóra á Djúpavogi

Sveitarfélagið Múlaþing leitar að einstaklingi til starfa við ýmis verkefni sveitarfélagsins á stjórnsýslusviði og er starfsstöð viðkomandi á skrifstofu Múlaþings á Djúpavogi. Um er að ræða fjölbreytt og áhugavert 100% framtíðarstarf í lifandi umhverfi.

Næsti yfirmaður er sveitarstjóri og er ráðið í starfið frá 1.júní nk.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með verkefnum sveitarfélagsins á staðnum í samráði við sveitarstjóra og yfirmenn viðkomandi sviða.
  • Undirbýr og situr fundi með heimastjórn Djúpavogs.
  • Sér um ritun fundargerða heimastjórnar og sér um  að afgreiðslur heimastjórnar komist í réttan farveg.
  • Samráð og samstarf um verkefni við annað starfsfólk á stjórnsýslusviði.
  • Veita íbúum og öðrum sem til skrifstofu Múlaþings á Djúpavogi leita faglega og góða þjónustu og koma erindum í réttan farveg.
  • Starfsmaður sér um innkaup á daglegum vörum fyrir skrifstofuna á Djúpavogi og hefur umsjón með daglegum rekstri á búnaði skrifstofunnar á Djúpavogi.
  • Tengiliður sveitarfélagsins vegna Cittaslow verkefnisins.
  • Ýmis verkefni tengd höfnum Múlaþings.
  • Önnur verkefni sem sveitarstjóri felur viðkomandi.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf á fyrsta stigi (BS/BA) sem nýtist í starfi er skilyrði, framhaldsháskólamenntun kostur.
  • Gerð er krafa um frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
  • Gerð er krafa um þekkingu á sveitarstjórnarmálum og/eða opinberri stjórnsýslu.
  • Þekking og reynsla af verkefnastjórnun.
  • Gerð er krafa um búsetu í gamla Djúpavogshreppi.
  • Góð tölvukunnátta.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta og gott vald á að skrifa texta.
  • Góð þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.